Walking Tour

Íslendingaganga

40.000 ISK

Göngutúr um miðborgina OKKAR!

Gengið um miðborgina með sagnfræðingi, þar sem stiklað verður á stórum atburðum í sögunni á léttan og skemmtilegan hátt. Hægt að bæta við matarupplifun, allt sérsniðið að þínum hóp.
Frábært hópefli fyrir fyrirtæki jafnt sem saumaklúbba.

40.000 ISK
Allt árið um kring!
Allir aldurshópar!
Wheelchair accessible
IN ICELANDIC

Íslenskir Túrhestar!

Reykjavík á sér langa sögu aftur til Ingólfs, þó bærinn sjálfur hafi ekki myndast fyrr en við Innréttingarnar á miðri 18. öld. Það ættu flestir íslendingar að vita. Við leitumst við að dýpka skilning gesta á höfuðborginni okkar. Hús og dauðir hlutir sem eru allt í kringum okkur og er aldrei minnst á, fá nú loksins að segja eigin sögu.

Möguleiki á að bæta við matarupplifun við ferðina, matarsmakk og jafnvel bjórsmakk ef gestir hafa áhuga á því. Við mælum eindregið með því að enda svo á veitingastað, bar eða jafnvel í pílu til að fullkomna kvöldið.

Við mælum með að hámarki 20 manns per leiðsögumann.
Verðið miðast við leiðsögumann.

Við getum bætt ýmsu við túrinn ef áhugi er fyrir hendi. Smakk á börum eða veitingastöðum, heimsóknir í kirkjur eða söfn, pylsa eða pulsa o.s.fv.
Við viljum einnig minna fólk á að “ölvun ógildir miðann” 😉

Book your tour

  • 40.000 ISK
  • Book in Advance

Booking

Allir áhugasamir eru hvattir til að koma sér í samband og leita frekari upplýsinga í síma 7877779 eða 8230760 (Marteinn), einnig er hægt að senda okkur e-mail á [email protected]

Í flestum tilfellum getum við tekið á móti hópum, og jafnvel með stuttum fyrirvara. Helgar og summer season er þó aðeins erfiðara en virkir dagar og um vetur.

  • DD dot MM dot YYYY
  • :
  • Við mælum með Austurvelli eða í ráðhúsi Reykjavíkur, þar er alltaf tómt eftir kl 15:00 ;)
    Viðbótarkostnaður fellur til, annað hvort getiði sjálf séð um að greiða á staðnum eða greitt í gegnum CityWalk sem í einhverjum tilfellum er hagstæðara og einfaldara en ekki alltaf.
  • Hvernig hópur er þetta og hvað tengir ykkur saman, hve mörg og eru einhver preferred finishing location